ágúst 27, 2008

Ég veit bara ekki alveg hvernig ég á að taka þessu

Ég hef yfirleitt verið nokkuð ánægður með þetta blogg. Ég hef ekki mikið verið að bera það saman við önnur blogg, og þó að Halli sé yfirleitt með lengri færslur en ég og Bobby birti miklu fleiri færslur, þó að Katrín sé með fleiri sjálfsmyndir en ég, þá hef ég hingað til ekki séð ástæðu til að bera mig saman við aðra bloggara. Enda virðist fólki líka bloggið vel, það er vel lesið, og hef ég meira að segja hlotið heiðurs-doktortitil frá háskólanum í tromsö fyrir bloggfærslu hér.

En samkeppnin hefur allt í einu færst í aukana. Ég er nú kominn í rífandi samkeppni við Blogg Meistara. Og ég er að tapa. Hvernig getur maður haldið í við mann sem getur skrifað svona stutta og skorinorta gullmola, færslu eftir færslu? (ég myndi skrifa færslu eftir færslu eftir færslu, en hann hefur bara birt tvær).

Kæru lesendur. Ég skil vel ef þið yfirgefið þennann óæðri vefannál og leggið héðan í frá í vana ykkar að koma við hjá Blogg Meistaranum í staðinn. Ég veit að ég myndi gera það.

Takk fyrir komurnar.

ágúst 26, 2008

Dr. Sveinbjörn Einstein

ágúst 22, 2008

Af hverju ég blogga sjaldan.

Picture 11.png

Ég sá þetta á skjánum mínum um daginn.

Ég hef klárlega dottið í lukkupottinn.

Ég byrja kannski að blogga aftur reglulega þegar ég er búinn að finna út hvað ég ætla að gera við alla peningana.

Sjáumst þá!

ágúst 18, 2008

Strákurinn

Pabbi minn var til sjós á sínum yngri árum. Hann hætti því (að undanskildum einum túr sem við fórum saman, hann ég og stóra systir um evrópu með Mælifelli 1990 eða svo) upp úr 1983, en átti samt svona sjóaravini og talaði oft sjóaralega með sjóaravinunum.

Eða ég held það allavega, því einhversstaðar lærði ég frasann "hefur ekki migið í saltann sjó".

Ég var nýfluttur á Súðavík, sennilega ellefu ára gamall, þegar ég fór að velta fyrir mér þessum frasa og hvað hann hefði að segja um mig. Ég ákvað að bæta stöðuna strax, skellti mér niðrá bryggju og leiðrétti málið hið snarasta.

ágúst 14, 2008

Reglur internetrifrilda

Af gefnu tilefni:


#1:
Ekki koma af stað ílldeilum á internetinu ef þú treystir þér ekki til að bakka upp það sem þú segir.

#2:
Ef þú veist ekki hvernig þú átt að svara viðbrögðum fólks við því sem þú hefur sagt, ekki segja neitt. Internetið þeysist áfram á fjórföldum hraða, það verða allir búnir að gleyma þessu eftir hálfann dag. Ekki henda út því sem þú kannt ekki að svara. Það er bara glatað.

Það versta við þessa bloggtísku hjá eldra liðinu er það að það er að streyma inn á netið fólk sem kann sig ekki, veit ekki upp á sig skömmina, en ætti samt að vera nógu gamalt til að vita betur. Þeir mannasiðir sem tíðkast í matarboði tíðkast á netinu. Þú verður að standa við það sem þú segir og það að þagga niður í fólki sem þú skilur ekki eða er þér ofjarl í röksemdafærslu eða gríni er plebbalegt, hvort sem það er yfir pastarétti á Horninu eða á Vísisbloggi. Þó að það sjái þig enginn á meðan þú ert á internetinu þá sjá samt allir sem vilja hvað þú gerir þar.

Meira um það hversvegna ég er svona pirraður hérna.

ágúst 11, 2008

hakk

júlí 14, 2008

Nýjar myndir

Var að henda nýjum símamyndum inná flickr. Ef þú þekkir mig er kannski mynd af þér þarna! Heppin/n!

» Símamyndir 2007-8 á Flickr

Categories


Powered by
Movable Type 4.01